Að laumast út í bjarta Jónsmessunótt og hitta skemmtilega manneskju, - gúmmístígvél, klettar, sígó, bjór og jú,jú, "ólgandi hafið". Getur ekki klikkað. Kindagöturnar vísa veginn...
Bíbí er enn sigld þótt hún reyki ei lengur Caprí. Hún er orðin leiknari með vængina og veit enda af hafinu fyrir neðan sem grípur af þessari líka mýkt. Meðvindur er góður. Já, svo stal hún einu sinni bíl. En það var óvart.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli