held hún sé að fara að skipta um ham
skottan sú
óumflýjanleg örlög sporðdrekans
sem vill losna við allt
henda selja gefa
sófasettið frá ömmu vínilplötur barnaleikföng borðdúka bókahillur
föt sem bera í sér skorpnar húðflögur
líkamlegar leifar hins liðna
súrt og sætt og allt það ...
skrifar nótur á blað úr hreistri sem hún skefur undan nöglunum
ný stelpa sem sönglar nýtt lag
uppáhalds orðið mitt er "já".
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
jájájá ekki spuring já
lúv - gott að lesa þig aftur
spuuuring spra spru sprangandi
já, lestu mig elskan mín
eins og ég mun lesa þig
alltaf
Skrifa ummæli